Ungfrú Texas, Margana Wood, vakti heldur betur athygli þegar hún lét Donald Trump heyra það í keppninni um fegurstu konu Bandaríkjanna sem fram fór í New Jersey í gær. Ræða hennar hefur farið sem eldur í sinu um netið í dag.
Í svokölluðum Q&A hluta keppninnar voru keppendur spurðir spjörunum úr. Þegar kom að Margana var hún beðin um að segja skoðun sína á viðbrögðum Donalds Trump við uppþotinu í Charlottesville, þegar þjóðernissinnar og rasistar gerðu allt vitlaust.
Sjá einnig: Örskýring: Hvað er að gerast í Charlottesville?
Hún var ekki lengi að hugsa sig um og fordæmdi Trump og viðbrögð hans harðlega. „Það er augljóst að þarna voru á ferðinni hryðjuverk og Trump hefði átt að fordæma þau strax,“ sagði Margana Wood.
Sjáðu ræðuna hér að neðan.
Miss Texas was asked if Trump handled Charlottesville badly. She, uh … didn't play. ?? #MissAmerica pic.twitter.com/5JMT4tBpeL
— shauna (@goldengateblond) September 11, 2017