Nemendafélag Verslunarskólans afbókaði Egil Einarsson, eða DJ Muscleboy, sem átti að koma fram á lokaballi skólans í næstu viku vegna þrýsting frá femínistafélagi skólans. Agli hefur verið skipt út fyrir Áttuna. Vísir greinir frá.
Tilkynnt var um þessa breytingu í Facebook-hópi nemendafélags skólans. Þar segir Viktor Pétur Finnsson, formaður málfundafélags skólans, að þau hafi sýnt ákveðið dómgreindarleysi þegar tekin var ákvörðun um að fá DJ Muscleboy til að spila. Í framtíðinni munu þau sem stjórna skemmtanahaldi innan skólans ráðfæra sig við femínistafélag skólans.
Samkvæmt frétt Vísis ætlar Egill samt sem áður að rukka nemendafélagið fyrir giggið.