Auglýsing

Nítján í gæsluvarðhaldi á Keflavíkurflugvelli: Einn Íslendingur og margir höfðu innbyrt fíkniefni til smygls

Í dag sitja 19 manns í gæsluvarðhaldi vegna aðgerða lögreglu, aðallega í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Þar af sitja 11 inni vegna innflutnings á ólöglegum fíkniefnum. Aðrir sitja inni vegna meintra brota á útlendingalögum og vegna gruns um mansal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Einn Íslendingur er í hópi þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi. Aðrir eru frá Gana, Egyptalandi, Frakklandi, Súrínam, Hollandi, Kanada, Georgíu, Marokkó, Tékklandi, Brasilíu og Kólumbíu. Flestir koma til landsins frá öðru Evrópulandi. Þeir sem innbyrt hafa fíkniefni skila þeim af sér í gegnum meltingarveg í sérútbúinni aðstöðu á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ. Aðstaða sem ekki er að finna á öðrum lögreglustöðvum eða fangelsum hér á landi.

Álag vegna Schengen-samstarfsins

„Álag á starfsmenn er mikið, ekki síst vegna fjölda frávísunarmála en segja má að aðgerðir lögreglu og tollgæslu í flugstöðinni, allra síðustu ár, séu einstakar ef horft er til þróunar slíkra afskipta hér á landi frá fullri þátttöku Íslands í Schengen samstarfinu í mars 2001. Það er út af fyrir sig áhyggjuefni að ekki hafi tekist betur til í áranna rás að halda uppi öflugra landamæreftirliti og þá ekki síst á innri landamærum,“ segir í tilkynningunni þar sem fram kemur einnig að það sem af er þessu ári eru frávísunarmálin orðin 622, en voru 439 í fyrra.

„Fyrir íslenska þjóð skiptir eftirlit á innri landamærum Schengen gríðarlega miklu máli ekki síst þegar hriktir í stoðum landamæraeftirlits í Evrópu. Áherslur hafa verið á ytri landamærum Schengen samstarfsins en innri landamærum hefur að sama skapi verið gefinn lítill gaumur. Með breyttum áherslum, þjálfun og verklagsreglum hefur lögregla og tollgæsla haldið úti eftirliti öðru en kerfisbundnu á innri landamærum á Keflavíkurflugvelli. Greining farþegaupplýsinga frá flugfélögum er lykilþáttur í eftirliti á innri landamærum en hefur ekki áhrif á afnám persónubundins eftirlits á innri landamærum Schengen ríkjanna. Frumkvæðisvinna og innlend sem erlend lögreglusamvinna er mikilvæg.“

Ónothæf lögreglustöð vegna myglu

Þá segir einnig að á sama tíma búi lögreglan á Suðurnesjum við aðstöðuleysi en eins og kunnugt er hefur einungis verið hægt að nota fangaklefa lögreglustöðvarinnar í Reykjanesbæ og hefur svo verið frá því í október á síðasta ári.

„Stöðin hefur að öðru leyti verið ónothæf. Unnið er að endurbótum en brýnt er að hraða framkvæmdum, en áætlað er að þeim ljúki í febrúar á næsta ári. Meðal annars verða settir upp sérútbúnir gámar til bráðabirgða til að bæta vinnuaðstöðu lögreglu. Lögreglustjóri hefur lagt á það áherslu að verkinu verði lokið á þessu ári, en alls er óvíst að framkvæmdum ljúki á tilsettum tíma. Reyndar bendir fátt til þess.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing