Hundruð notenda Twitter hafa tekið þátt í átakinu #6dagsleikinn á Twitter í vikunni.
Hópur nemenda á málþingi kynjafræðinema sjö menntaskóla fór af stað með kassamerkið #6dagsleikinn á Twitter í vikunni. Átakinu er ætlað að varpa ljósi á hversdagslegt misrétti.
Sjá einnig: Íslenskar konur opna sig um hversdagslegt misrétti
Þetta byrjaði á nokkrum tístum frá konum en síðan þá hafa bæði strákar og stelpur deilt hundruð tísta um hversdagslegu misrétti með notendum Twitter. Nútíminn tók saman nokkur svakaleg tíst sem hljóta að vekja fólk til umhugsunar.
9. Klassík
Hann er player
Hún er lauslát #6dagsleikinn— Катла (@englabarn) April 15, 2015
8. Magnaðar undirtektir hér á ferð
Þegar "ég á kærasta" er talið gildara svar en "nei takk" því strákar virða aðra stráka meira en rétt minn til að segja nei #6dagsleikinn
— Alma Ágústsdóttir (@kynvera) April 15, 2015
7.
Þegar stelpa nauðgaði bróðir vinkonu minnar þegar hann var dauðadrukkinn og öllum fannst það fyndið #6dagsleikinn
— sæsa (@saeunnjodisss) April 15, 2015
6.
Að #FreeTheNipple hafi valdið fleiri en einum sambandsslitum #6dagsleikinn
— Nanna Hermannsdóttir (@nannahermanns) April 15, 2015
5. Úff
Útvarpsmaður eftir viðtal: „Vó, ég sem hélt að það væri ekkert í hausnum á þér, þú lúkkaðir þannig fyrst“ #6dagsleikinn
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) April 15, 2015
4. 1960 hringdi…
Litli frændi minn kom seint á fótboltaæfingu vegna balletæfingar og þjálfarinn spurði hvort hann væri hommi. Hætti í ballet. #6dagsleikinn
— Stefán Gunnar (@stefangusi1) April 15, 2015
3.
taka pillu 24/7 sem gæti fitað hana, crazy moodswings og jafnvel blóðtappa því honum finnst smokkurinn eittvað óþæginlegur;* #6dagsleikinn
— melkorka (@melkorka7fn) April 15, 2015
2. Ó, Reykjavík
Þega ég er ein úti seint er ég undantekningalaust með lykla á milli fingranna, 112 slegið inn og fingurinn í viðbragðsstöðu #6dagsleikinn
— Sunna Ben (@SunnaBen) April 16, 2015
1. Punkturinn yfir i-ið
Að þetta sé allt svo satt. #6dagsleikinn
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) April 15, 2015