Endurupptökunefnd hefur ákveðið að fresta því að birta niðurstöðu sína um mögulega endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna vegna ábendingar frá „mjög traustum aðila“. Ábendingin kom fram í síðustu viku.
Ábendingin tengist ekki handtöku tveggja manna í sumar í tengslum við rannsókn setts saksóknara á morði Guðmundar Einarssonar.
Ekki kemur fram hvoru málinu ábendingin sem um ræðir tengist.
Í frétt mbl.is kemur fram að óskað hafi verið eftir því að sá sem kom ábendingunni á framfæri gefi skýrslu hjá lögreglu og að hún verði rannsökuð frekar.
Niðurstöður endurupptökunefndar verða því ekki kynntar fyrr en eftir áramót.