Auglýsing

Nýir þættir af Arrested Development væntanlegir

Sjónvarpsþættirnir Arrested Development snúa aftur á Netflix innan tíðar. 17 nýir þættir eru væntanlegir.

 

Afþreyingarrisinn Netflix hefur ekki tilkynnt um nýja þáttaröð af Arrested Development. Brian Grazer, sem rekur framleiðslufyrirtækið Imagine Entertainment ásamt leikstjóranum Ron Howard, tilkynnti hins vegar í dag að nýir þættir væru pottþétt á leiðinni.

Sjá einnig: Nýtt á Netflix í apríl

Grazer sagði ekkert um tímasetningar þannig að það er ennþá óvíst hvenær af þessu verður en hann sagði hins vegar að 17 nýir þættir yrðu framleiddir. Hann gaf engar frekari upplýsingar, hvorki um leikara né annað.

Hér má sjá tilkynningu Grazer í hlaðvarpi Bill Simmons.

https://www.youtube.com/watch?t=1468&v=NOy6WYr9jxQ

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing