Auglýsing

Nýjasta Vine-stjarnan er sjónhverfingamaður: Milljónir fylgjast með

Nýjasta Vine-stjarnan leikur sér að tækninni og það skilar sér í milljónum fylgjenda.

 

Myndbönd hins 23 ára gamla Zach King hafa tekið yfir samfélagsmiðla á borð við Vine og Facebook. Hann hefur komið fram í þætti Ellenar Degeneres og safnað að sér milljónum fylgjendum.

Tyrkneska dagblaðið Maci Kocaeli birti samantekt á Vine-myndböndum King á Facebook á dögunum. Hún er komin með fleiri en 93 milljónir áhorfa og 1,7 milljón deilinga. Samantektina má sjá hér fyrir neðan.

https://youtu.be/tOwlxh-rWEI

Zach King er með 2,9 milljónir fylgjenda á Vine og búið er að horfa á myndbönd hans oftar en 760 milljón sinnum. Ótrúlegur árangur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing