Auglýsing

Nýjum myndum af iPhone 6 lekið

Talið er að Apple kynni nýjan iPhone þriðjudaginn 9. september næstkomandi. Eftirvæntingin er mikil og nýjar myndir, sem láku á kínverska samfélagsmiðilinn Feng á dögunum, eru taldar sýna hvernig einstakir hlutar iPhone 6 líta út, samkvæmt vef Business Insider.

Óvíst er hvernig endanlegur útgáfa af iPhone 6 lítur út en þessar myndir ættu að gefa þeim allra spenntustu einhverjar vísbendingar.

Þetta ku vera mynd af bakhliðinni. Takið eftir að síminn er stærri og lögun hans önnur en forveranna.

Hiðarnar eru mikið öðruvísi en á forverunum.

o-IPHONE-2-570

Botninn. Þar er að finna tengi fyrir heyrnatól og endurbættan hátalara.

o-IPHONE-3-570

Talið er öruggt að skjárinn verði stærri á iPhone 6 og þessar myndir sýna að svartir og hvítir símar verða í boði eins og áður.

o-IPHONE-5-570

o-IPHONE-4-570

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing