Hamborgarafabrikkan greindi í gær frá því að næsti borgarinn á matseðli staðarins verður nefndur eftir leikaranum Stefáni Karli Stefánssyni, sem lést í fyrra. Borgarinn heitir Stefán Karl – Síðasta kvöldmáltíðin en Stefán valdi nafnið sjálfur á sínum tíma.
Vakinn er athygli á þessu á Facebook-síðunni markaðsnördar þar sem sumir telja nafnið óviðeigandi en því hefur verið svarað með því að benda á að borgarinn sé settur á matseðilinn með blessun Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur, eiginkonu Stefáns Karls og að Stefán hafi valið nafnið sjálfur á sínum tíma.
Með myndinni sem Hamborgarafabrikkan birti á Facebook stendur: „Hér er hann loksins mættur úr hugarfylgsnum okkar ástsæla vinar, grínborgarinn Stefán Karl — síðasta kvöldmáltíðin.“
Í grein sem birtist hér á Nútímanum í fyrra má sjá myndband af heimsókn þeirra Simma og Jóa til Stefáns Karls í snjallbýlið Sprettu vegna hugmynda um að koma grænfóðri Stefáns Karls í borgara, en í þeirri heimsókn lagði Stefán Karl til að borgarinn fengi heitið Síðasta kvöldmáltíðin.