Fjölmiðlamaðurinn Hallgrímur Thorsteinsson, umsjónarmaður útvarpsþáttarins Vikuloka á RÚV, hefur verið ráðinn ritstjóri DV. Reynir Traustason hefur verið leystur undan starfsskyldum sem ritstjóri.
Hallgrímur segir í samtali við Mbl.is að ritstjórnarstefnan breytist ekki.
Ég sé ekki að stefnan muni breytast. Það getur orðið blæbrigðamunur, en það verður það alltaf þegar nýir stjórnendur taka við, en stefna blaðsins er óbreytt. Það er fásinna fyrir fólk sem ætlar að reka DV áfram að fara að búa til einhverja aðra stefnu úr miðlinum en er. Það er eins og að breyta spíttkerru í dúkkuvagn.
Í tilkynningu til fjölmiðla sagði Þorsteinn Guðnason, stjórnarformaður DV ehf., að til standi að efla og styrkja félagið. „DV er fjölmiðill sem er mikilvægur fyrir íslenskt samfélag. Blaðið hefur lagt stund á rannsóknarblaðamennsku og er það ætlun nýrrar stjórnar að halda áfram á þeirri braut. Slík blaðamennska gerir miklar kröfur til þeirra sem hana stunda og um leið þarf að vera hafið yfir allan vafa að ritstjórnin sé sjálfstæð og öllum óháð,“ segir hann.