Auglýsing

Nýtt upphaf Stefáns Eiríks á Twitter

Stefán Eiríksson tekur við sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í dag en um leið tekur Sigríður Björk Guðjónsdóttir við sem nýr lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins.

Stefán er virkur Twitter-notandi og var með notendanafnið @logreglustjori. Eins og Nútíminn greindi frá í síðustu viku ætlar hann ekki að halda áfram að nota þetta merkilega notendanafn í nýja starfinu en sagði nýjan lögreglustjóra ekki hafa óskað eftir að taka við því.

Nú hefur Stefán hins vegar skráð sig á Twitter undir eigin nafni og tekið upp þráðinn á ný. Hann þarf að vísu að byggja upp nýjan fylgjendahóp en það er ljóst að hann ætlar ekki að brenna sig aftur á því að tengja notendanafn við starfsheiti.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing