Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og eiginkona hans, Michelle Obama eiga í samningaviðræðum við streymisveituna Netflix um gerð sjónvarpsþátta. New York Times greinir frá þessu.
Ekki er búið að greina frá því um hvað þættirnir eigi að fjalla eða hver aðkoma þeirra hjóna verður. Forsvarsmenn Netflix vildu ekki tjá sig um viðræðurnar þegar eftir því var leitað en viðskiptavinir fyrirtækisins eru yfir 117 milljónir um heim allan.
Heimildarmenn New York Times segja að Obama ætli sér ekki að nota þættina til að gagnrýna núveranda forseta Bandaríkjanna, Donald Trump og hans störf.