Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í gærkvöldi. Á tólfta tímanum í nótt var bíl ekið inn í verslunina Seljakjör við Seljabraut í Breiðholti.
Engan sakaði en ökumaður lét sig hverfa af vettvangi. Þegar lögregla hafði samband við eiganda bílsins kom í ljós að bílnum hafði verið stolið. Unnið er að því að loka innganginum.
Þá var karlmaður handtekinn á skemmtistað í miðbænum eftir að hafa verið að angra dyraverði, sjúkraflutningamenn og lögreglu sem voru að sinna öðru máli á staðnum.