Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er íþróttamaður ársins. Aron Einar Gunnarsson í öðru sæti og Gylfi Þór Sigurðsson var í því þriðja. Valið var í beinni útsendingu á RÚV en það eru samtök íþróttafréttamanna sem sjá um valið.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta var lið ársins og Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, var valinn þjálfari ársins.
Tíu efstu í kjörinu
- Aníta Hinriksdóttir, frjálsar íþróttir
- Aron Einar Gunnarsson, fótbolti
- Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti
- Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti
- Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra
- Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund
- Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti
- Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf
- Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti
- Valdís Þóra Jónsdóttir, golf
Lið ársins
- A-landslið karla í fótbolta
- karlalið Vals í handbolta
- kvennalið Þórs/KA í fótbolta
Þjálfarar ársins
- Elísabet Gunnarsdóttir fótbolta
- Heimir Hallgrímsson fótbolta
- Þórir Hergeirsson handbolta