Auglýsing

Ómar Ragnarsson bætist í hóp þeirra sem senda frá sér HM-lag: „Áfram nú! Koma svo!”

Ómar Ragnarsson sendi í dag frá sér stuðningslag fyrir íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem spilar á HM í Rússlandi í sumar. Lagið heitir „Koma svo!” og er aðgengilegt á Youtube. Hlustaðu á lagið hér að neðan.

Ómar segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að hann hafi snarað laginu fram á stuttum tíma og það eigi að vera einfalt baráttulag. Hann segir að hann hafi ólmur viljað taka þátt í HM-hópeflinu sem er í gangi í samfélaginu núna en lagið sé þó hugsað sem almennt hvatningar- og baráttulag.

Íslendingar hefja leik á HM í Rússlandi á laugardaginn klukkan 13 þegar liðið mætir Argentínumönnum.

Hlustaðu á lag Ómars að neðan

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing