Athugið áður en þið lesið þessa frétt að í henni er að finna lýsingar á hræðilegu kynferðislegu ofbeldi.
—
Breski leikarinn Ed Westwick hefur nú verið sakaður um nauðgun í annað skipti í þessari viku. Leikkonan Kristina Cohen greindi frá því að Ed hafa nauðgað sér þegar hún var gestkomandi á heimili hans fyrir þremur árum. Nú hefur önnur kona, Aurélie Wynn, deilt því opinberlega að hún hafi lent í svipuðu atviki og Cohen.
Sjá einnig: Lilja lýsti ruddaskap Ed Westwick og var sögð ástæða þess að íslenskar stelpur væru kallaðar druslur
Aurélie lýsir atvikinu í samtali við Metro. „Hann ýtti mér og hélt mér niðri með andlitið á grúfu, ég var valdlaus gagnvart styrk hans. Ég var klædd í sundbol sem hann reif í sundur, ég var í algjöru sjokki,“ segir Aurélie
Aurélie þakkar Kristinu Cohen fyrir að hafa sagt sína sögu. „Án þín hefði ég ekki haft styrk til að til að segja frá þessu opinberlega.“