Hamborgarakeðja McDonald’s hefur opnað sinn minnsta veitingastað í Svíþjóð. Staðurinn er þó ekki hefðbundinn hamborgarastaður en hann er ætlaður öðrum viðskiptavinum en flestir McDonald’s staðir í heiminum.
Sjá einnig: McDonalds ekki með nein áform um að opna á Íslandi aftur
Staðurinn er ætlaður býflugum en í honum rúmast þúsundir býflugna. McHive er nýtt átak McDonalds fyrir býflugur en tilgangur búsins er að vekja athygli á tilraunaverkefni sænskra McDonald’s-staða sem eru með býflugnabú á þakinu auk blóma til að skapa býflugum athvarf en býflugur um heim allan eru í bráðri útrýmingarhættu og er talið fjórðungur allra býflugnategunda í Bandaríkjunum séu í útrýmingarhættu.
Í dag má finna bú á öllum stöðum keðjunnar í Svíþjóð og er stefnt á að verði einnig tilfellið um allan heim fljótlega.