Opnað hefur verið fyrir umferð um Ölfusárbrú aftur en brúnni var lokað á mánudag vegna framkvæmd. Þetta kemur fram í frétt á Vísi.
Gert var ráð fyrir að brúin yrði lokuð í heila viku eða fram til mánudagsins 20. ágúst en síðar var tilkynnt að brúin myndi opna í dag, föstudag.
Brúin var orðin afar slitin og hjólför orðin allt að 50 millimetra djúp og var því ráðist í framkvæmdir á brúnni.