Auglýsing

Óttar upplifði bilunina í Barselóna eftir kraftaverkaleikinn: „Ég sá mann með hækjur dansa“

Ótrúlegir hlutir áttu sér stað í Barselóna á Spáni í gær þegar heimamenn komust áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir lygilegan sigur á Paris Saint Germain.

PSG vann fyrri leikinn 4-0 og Barselóna þurfti því að vinna seinni leikinn með fimm marka mun til að komast áfram. Það tókst, leikurinn fór 6-1 og lokamarkið kom á síðustu sekúndum leiksins.

Rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð býr í Barselóna og lýsir stemningunni í borginni eftir leikinn á Facebook-síðu sinni. „Á kaffihúsinu mínu talaði fólk um lítið annað, forsíður dagblaða lýsa hetjum og kraftaverki, og ókunnugir eru skyndilega bestu vinir,“ segir hann.

Það gildir líka um mig, en þar sem ég horfði á leikinni í gær á bar faðmaði ég einhvern bláókunnugan Spánverja þétt að mér þegar Sergi Roberto skoraði sigurmarkið.

Óttar segir að bilunin hafi einmitt hafist þegar sigurmarkið kom. „Öll borgin missti sig, bílar flautuðu, flugeldar fóru í loftið, og fólk dansaði úti á götu,“ segir hann.

„Ég sá mann með hækjur dansa, svo það má kannski segja að þetta hafi verið kraftaverk, og eins og öll góð kraftaverk er það auðvitað umdeilt, en það er bara partur af leiknum.“

Óttar segist gera sér grein fyrir að mörgum sé alveg sama um fótbolta. „En fyrir okkur sem elskum íþróttina, þá má kannski líkja þessu við trúarbrögð. Annað hvort sér maður ljósið eða ekki,“ segir hann.

„Það eina sem ég get sagt er að leikurinn í gær kenndi manni að gefast aldrei upp, að það er alltaf hægt að snúa stöðunni við, meira að segja á lokamínútunni, svo framarlega sem maður missir ekki trúna.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing