Ummæli Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag, um að Alþingi skuli skoða hvort að rétt sé að snúa hælisleitendum til síns heima í Keflavík, hafa vakið hörð viðbrögð. Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir að hann gæti ekki verið meira ósammála þingmanninum.
Ásmundur sagði landsmenn ekki þora að hafa skoðun á þessum málum en tilefni ræðu hans voru hótanir hælisleitanda um að hann myndi kveikja í sér. Hann sagði flóttamannastrauminn í Evrópu stórkostlegt vandamál og benti á að Svíar og Danir hefðu takmarkað komu flóttamanna til landsins til að geta fylgst með hverjir kæmu til landanna.
Loks spurði hann hvort að Íslendingar þyrftu að fara að fordæmi nágrannaþjóðanna og takmarka aðgengi fólks hingað eins og áður en Schengen-samkomulagið tók gildi.
Óttarr Proppé vísar í frétt mbl.is um málið á Facebook og spyr hvort maður eigi að hafa meiri áhyggjur af þeim sem vilja vera góðir eða þeim sem vilja vera vondir. „Ég gæti ekki verið meira ósammála þingmanninum. Mannvonska er einfaldlega óásættanleg,“ sagði hann.