Poppkóngurinn Páll Óskar Hjálmtýsson vill að Íslendingar sniðgangi Eurovision í Ísrael á næsta ári. Þetta kemur fram í pistli á Facebook-síðu hans. Páll Óskar bætist þar með í hóp rúmlega 7.000 manns sem hafa skrifað undir mótmæli á þátttöku í keppninni.
Páll Óskar segir að þrátt fyrir að hann elski Eurovision mikið þá finnist honum hið besta mál að sitja hjá og sniðganga keppnina hjá þjóðum sem hafa gerst brotlegar við alþjóðalög og blóðuga stríðsglæpi næstum dag hvern. „Og hafa gert síðustu 70 árin,“ segir hann.
Upplýsingar um sögu Ísraels flæða núna á gervihnattaöld til fólks sem hefur kannski hingað til verið glórulaust um hve alvarlegt ástandið er á Gaza svæðinu. Ég var einn af þeim glórulausu. Ég hafði ósköp litla hugmynd um hvað væri í gangi þarna síðast þegar Íslendingar kepptu í Jerúsalem árið 1999.
Páll Óskar segir að ímyndarherferð Ísraels sé að koma í bakið á þeim. „Við vitum betur. Eurovision bliknar og blánar í samanburði við yfirganginn, stjórnsemina og frekjuna sem sponsuð af Bandaríkjunum og nú á að fara í fegrunaraðgerð á ímynd Ísraels út á við með Eurovision,“ segir hann.
„Svo ég vitni nú í Bjarna Karlsson: „Ég samhryggist gyðingum í Ísrael að hafa gengið gegnum árþúsunda höfnun og helför seinni heimstyrjaldar, án þess að öðlast þekkingu á friði en verða þess í stað nákvæm eftirlíking eigin óvina.““
Páll Óskar segir að hér sé kjörið tækifæri til að mótmæla fjöldamorðum Ísraelhers á Palestínu og setja Ísreal mörk á alþjóðavísu. „Það var pínlegt að heyra þakkarræðu Nettu frá Ísrael fyrir lag sem var sprottið að hennar sögn úr #metoo byltingunni: „Thank you for choosing different, thank you for accepting differences between us, thank you for celebrating diversity.“ Væri Netta kannski til í að gera það sama milli Ísrael og Palestínu, í stað þess að taka sjálfsmynd af sér klædda í einkennisbúning Ísraelshers? Hver veit hverju hún tók þátt í á meðan hún gengdi herskyldu?“
Páll Óskar ávarpar RÚV í pistli sínum og hvetur stofnunina til að nýta tækifærið og mótmæla með fjarveru Íslendinga. „Þessu afneitunar-gleðipartíi tökum við ekki þátt í,“ segir hann.
Sjá einnig: Daði Freyr íhugaði að taka þátt í undankeppni Eurovision á næsta ári en er hættur við
„Skemmtiefni, dægurlög og glamúrgallar eru nefnilega víst bullandi pólitískt mál. Að reyna að aðskilja pólitík og skemmtiefni eða íþróttir er fyrirsláttur. Barnamorð er að mínu áliti komið út fyrir það að vera pólitík. Barnamorð er ómennska.
Sniðgöngum Eurovision 2019. RÚV gæti gert margt frábært við peningana: Meira tónlistarefni, jafnvel okkar eigin íslensku lagakeppni, leikið efni sem og barnaefni á RÚV. Að sleppa einni Eurokeppni er lítið mál samanborið við þjóðarmorð Ísreals á Palestínu. Hver hefur geð á því að troða upp í Jerúsalem með yfirstandandi blóðbað hinum megin við vegginn? Ekki ég.“