Pete Davidson nýtti tækifærið í sjónvarpsþættinum Saturday Night Live í Bandaríkjunum í gærkvöldi og lét Kanye West heyra það. Kanye var gestur í þættinum fyrir viku síðan og hélt þá umdeilda ræðu til stuðnings Donalt Trump.
Ræða Kanye var ekki hluti af útsendingu þáttarins en áhorfendur í sal náðu henni á myndband og deildu á Twitter. Davidson segir að uppákoman hafi verið eitt það vandræðalegasta sem hann hefði upplifað í þáttunum.
Hann segir geðsjúkdóm Kanye West enga afsökun fyrir því að láta eins og fífl. Hann mælir með því að Kanye byrji að taka lyfin sín á ný, það sé engin skömm í því.
Sjáðu ræðu Davidson
Pete dropped by the Weekend Update desk to talk about last week’s musical guest, Kanye West. #SNL pic.twitter.com/LFzJJFTnbV
— Saturday Night Live – SNL (@nbcsnl) October 7, 2018