Auglýsing

Peter Schmeichel tók Kim Larsen-lag á Danska barnum

Danski fótboltamaðurinn Peter Schmeichel, fyrrverandi markvörður Manchester United og danska landsliðsins, tók lagið með stuðningsmönnum Manchester United á Danska barnum í gær. Schmeichel tók lagið Kvinde Min eftir danska tónlistarmanninn Kim Larsen og lék sjálfur undir á gítar.

Uppfært kl. 14.18: Myndband af Schmeichel að taka lagið:

Eins og Nútíminn greindi frá í síðustu viku er Schmeichel staddur hér á landi að taka þátt í hjólreiðaáskoruninni the Fire & Ice Challenge ásamt 30 öðrum hjólreiðamönnum. Schmeichel og félagar hjóluðu til að safna peningum til að bæta líf ungs fólks. Hópurinn gerði út frá Hellu þar sem annar fótboltakappi, sjálfur Hermann Hreiðarsson, tók á móti þeim.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing