Auglýsing

Píratar stærsti flokkur landsins í könnun MMR

Píratar mælast með 32% fylgi í nýrri könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokka. Þetta er í takti við nýjasta Þjóðarpúls Gallup sem birtist í síðustu viku. Þar mældust Píratar með 30% fylgi.

Sjá einnig: Fimm ástæður fyrir því að Helgi Pírati er glaðasti hundur í heimi

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 16. til 21. apríl 2015. Píratar hafa bætt við sig fylgi frá því í síðustu könnun og mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.

Fylgi Pírata mældist nú 32,0%, borið saman við 27,4% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,9%, borið saman við 22,9% í síðustu könnun.

Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,8%, borið saman við 13,1% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,8%, borið saman við 9,8% í síðustu könnun.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,7%, borið saman við 11,4% í síðustu könnun og fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 8,3%, borið saman við 10,3% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Nánar á vef MMR.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing