Pirelli-dagatalið er komið út í 42. skipti og í þetta skipti er ljósmyndarinn Steven Meisel á bakvið linsuna.
Ofurfyrirsætur á borð við Joan Smalls, Adriana Lima, Natalia Vodianova og Gigi Hadid eru á meðal þeirra sem sitja fyrir á dagatalinu en myndatakan fór fram í New York í maí.
Meisel sagði í fréttatilkynningu að hann vildi ekki tengja myndtökuna við einhvern tiltekinn stað, heldur skapa 12 ólík plaköt:
Þar sem ég vildi takmarka notkun á fötum og aukahlutum og þar sem ég hafði algjört listrænt frelsi þá fannst mér spennandi að leika mér að litum, förðun og efnum. Þetta var mjög gefandi upplifun.
Sýnisthorn af dagatalinu má sjá hér fyrir neðan. Við bendum þeim sem eru viðkvæmir fyrir nekt að velja sér nýja frétt til að skoða.