Auglýsing

Ráðherra skipar starfshóp til að kanna ávinning af því að leiðrétta klukkuna á Íslandi

Óttarr Proppé, starfandi heilbrigðisráðherra, hefur skipað starfshóp til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna hér á landi til samræmis við gang sólar. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Starfshópurinn á að skila ráðherra minnisblaði með niðurstöðum sínum fyrir 1. febrúar næstkomandi. Í frétt Stjórnarráðsins kemur fram að miðað við sólargang og legu landsins sé klukkan á Íslandi of fljót. „Nokkuð hefur verið fjallað um að þessi munur skekki þær upplýsingar sem lífsklukkan nýtir til að samhæfa starfsemi líkamans eftir vöku- eða svefntíma,“ segir þar.

Þetta valdi svokallaðri klukkuþreytu sem hafi neikvæð áhrif á svefnvenjur sem aftur auki líkur á ýmsum heilbrigðisvandamálum, s.s. offitu, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdómum.

Tillaga til þingsályktunar um seinkun klukkunnar á Íslandi um eina klukkustund var lögð fram á Alþingi árið 2015 en hlaut ekki efnislega umfjöllun.

Formaður starfshópsins er Ásthildur Knútsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Aðrir í hópnum eru Björg Þorleifsdóttir, lektor við læknadeild Háskóla Íslands, Erla Björnsdóttir sálfræðingur, stofnandi og stjórnarformaður fyrirtækisins Betri svefns og Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing