„Þegar allt fór úr böndunum þarna árið 2009 þá var ég að koma úr ráni úr apóteki þar sem einhver fíkill hafði í leit að efnum bara snappað og rænt staðinn. Ég var þarna að leita að fingraförum og skóförum og tryggja upptökur. Svo þegar ég kem út í bíl þá heyri ég bara neyðarkall frá Austurvell og að það þurfi alla tiltæka lögreglumenn þangað niður eftir. Ég hugsaði að þótt ég sé í rannsókn þá get ég ekkert slökkt á talstöðinni og fara bara heim og láta eins og ég hafi ekkert heyrt þetta. Ég er lögreglumaður og þarna eru margir vinir mínir, fólk sem var með mér í lögregluskólanum og fólk sem ég hef þekkt í yfir 20 ár. Þannig að ég fer niður eftir og kem við á stöðinni til að sækja búnað að þá var til gamall hjálmur, enginn hlífðarbúnaður en ég fékk langa kylfu og táragasgrímu og svo þurfti ég bara að fara niður eftir,“ segir Ragnar Jónsson, blóðferlasérfræðingur í tæknideild lögreglunnar.
„Svo allt í einu sé ég útundan mér að sá sem stóð við hliðina á mér dettur niður og þá fékk hann stærðarinnar hellustein í hliðina á hausnum, 4,5 kíló.“
Ragnar er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni á hlaðvarpsveitunni Brotkast. Hann fer í þættinum yfir feril sinn í lögreglunni sem spannar 33 ár og ræðir um verkefni tæknideildarinnar sem eru ansi fjölbreytt. Árið 2009 slasaðist Ragnar þegar hann sinnti störfum með óeirðalögreglunni þegar tugþúsundir Íslendinga mótmæltu stjórnvöldum í bankahruninu.
Táragasið klikkaði eða að minnsta kosti planið…
„Um leið og ég kem niður á Alþingi að þá er bara búið að taka ákvörðun um að dreifa mannfjöldanum og nota táragas í fyrsta skipti síðan 1949. Ég hugsaði bara ókei, ég get ekki bakkað úr svona aðstæðum og ég ætla ekki að skilja þá eftir. Hver manneskja skiptir máli svo við virkum fleiri en við raunverulega vorum. Þannig að ég er bara að fara að upplifa það að ganga út með óeirðarsveitinni og sérsveitarmönnum og að við séum að fara að nota táragas gegn samborgurum mínum. Og við gerum þetta, fann hjartað hamast og svo var þessu skotið en svo breyttist vindáttinn. Mannfjöldinn dreifðist aðeins og við röltum rólega tilbaka og héldum að þetta væri búið. Vindáttinn breyttist og fólkið kom ennþá reiðara tilbaka og fór að henda múrsteinum í okkur og öllu saman,“ segir Ragnar en tekur fram að það hafi ekki gengið sem skyldi að nota táragas.
„Nei, það hafði alls ekki tilætlaðan árangur. Við vorum 14 kannski sem vorum alveg upp að nýja innganginum að Alþingi með bakið upp að vegg. Ég var í aftari línu í engri brynju og ég fann alveg grjótið fyrst lenda í veggnum og svo í bakinu á mér. Þeir voru með skjaldarsveitina fyrir fram og við vorum þrír eða fjórir fyrir aftan línuna. Svo allt í einu sé ég útundan mér að sá sem stóð við hliðina á mér dettur niður og þá fékk hann stærðarinnar hellustein í hliðina á hausnum, 4,5 kíló. Við drögum hann með okkur fyrir hornið og erum að reyna að koma honum inn í hliðargang. Ég fékk grjót í öxlina á mér, missti hana en greip með vinstri og reyndum með öllu að koma okkur inn í hús,“ segir Ragnar sem enn í dag hefur ekki að fullu unnið úr þessum áföllum sem bæði lögreglumenn og landsmenn allir urðu fyrir, bæði í hruninu og í mótmælunum sjálfum.
Erfitt að endurupplifa þetta
Ragnar endaði á bráðamótttökunni, þangað sem hann fylgdi kollega sínum og líka til að kanna með sjálfan sig. Kollegi hans var enn verulega vankaður eftir hellusteininn en á sama tíma mætti fjöldi mótmælenda sem var mættur til að þrífa úr augum sínum og fá aðhlynningu eftir aðgerðir lögreglunnar. Ragnar segir að þær aðstæður hafi verið skrítnar og súrrealískar.
„Það er erfitt að endurupplifa þetta.“
Virkilega áhugavert viðtal við einn af virtustu lögreglumönnum landsins – maður sem hefur marga fjöruna sopið þegar það kemur að löggæslumálum á Íslandi, rannsókni á morðum og mörgu fleiru sem myndi hafa áhrif á hvaða mann sem er. Þetta viðtal er hægt að sjá og heyra í fullri lengd með áskrift að hlaðvarpsveitunni Brotkast en Nútíminn fékk góðfúslegt leyfi til þess að birta brot úr því hér fyrir neðan.