Auglýsing

Ratcliffe kaupir jörð og leggur áherslu á sjálfbæra náttúruvernd

Jim Ratcliffe, stofnandi og stjórnarformaður INEOS, staðfestir að hafa fest kaup á jörðinni Brúarlandi 2, en kaupin eru hluti af uppbyggingu á sjálfbæru verndarsvæði laxa á Norðausturlandi.

Ratcliffe leggur áherslu á sjálfbæra náttúrvernd. Hann hefur þegar fjárfest í landareignum í Vopnafirði og leggst þar á árar með öðrum landeigendum og íbúum við vernd einstæðs náttúrfars svæðisins.

Hluti af aðgerðum til verndar laxinum sem áætlaðar eru á næstu fimm árum snýr að því að útvíkka hrygningarsvæði laxins með byggingu nýrra laxastiga í Hafralónsá, Hofsá og Miðfjarðará í Vopnafirði. Þá er fyrirhuguð umfangsmikil slepping á frjóvguðum hrognum í þessum ám, auk Selár. Þetta er í samræmi við almenna veiðireglu ánna um að veiddum fiski sé sleppt aftur.

Í samstarfi við nærsamfélagið á Norðausturlandi vinnur Jim Ratcliffe einnig gegn jarðeyðingu og að bættu heilsufari vistkerfis ánna, með fjárfestingu í endurræktun skóga og endurheimt gróðurfars.

Til þess að hægt sé að auka lífslíkur tegundarinnar sem mest, þá stendur Ratcliffe einnig að ítarlegri langtímarannsókn á afkomu íslenska laxins í ánum og í norðanverðu Atlantshafi. Rannsóknir fara fram í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og háskóla innan lands og utan.

„Norðausturland stendur hjarta mínu nær. Eftir því sem heimsóknunum þangað fjölgar eykst löngun mín til þess að gefa svæðinu til baka, til að hjálpa Norður-Atlantshafslaxinum, sem er ógnað, og einnig til að styðja við samfélagið nærri ánum. Mín skoðun er að sjálfbær langtímanálgun með starfsemi sem stendur undir eigin fjármögnun skipti sköpum, geri laxinum kleift að þrífast vel, ekki bara um skemmri tíma heldur um alla framtíð,“ segir Jim Ratcliffe.

Verndaráætlunin felur í sér sér nýja fjárfestingu og standsetningu veiðiskála, þar sem að koma iðnaðarmenn og fyrirtæki á svæðinu. Um leið eru bændur á markvissan hátt hvattir til að halda búsetu á jörðum sem keyptar hafa verið, til að viðhalda hefðbundum landbúnaði og jarðgæðum nærri ánum, og styðja með búsetu sinni með beinum hætti við nærsamfélagið.

Kaupin á meirihlutaeign í jörðinni Grímsstöðum, þar sem meðeigendur eru íslenska ríkið og smærri hluthafar, eru birtingarmynd heildstæðrar nálgunar Jim Ratcliffe á þetta mikilvæga verndarstarf. Þótt svæðið sé að mestum hluta óbyggt mýrlendi, er á hálendi þess að finna helstu vatnasvið ánna á Norðausturströndinni. Markmið kaupanna voru að vernda og viðhalda þessu einstæða umhverfi hálendisins.

Árangur af endurbótum og fyrri fjárfestingum Jims Ratcliffes í Selá er þegar sýnilegur, en þar hefur veiði nú aukist frá ári til árs. Þetta eru jákvæð teikn um að verndaráætlun hans þoki hlutum í rétta átt, og gefi náttúrunni færi á að dafna.

„Náttúruvernd hefur alltaf verið og verður áfram eini tilgangur aðkomu minnar á Norðausturlandi Íslands. Ég vil leggjast á árar við að viðhalda laxastofnunum þar, og vinna náið með bændum og byggðarlögum. Von mín er að úr starfinu verði til sjálfbær starfsemi í sátt við náttúruna, sem einnig komi lífríki svæðisins og samfélaginu öllu til góða,“ segir Jim Ratcliffe.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing