Í dag voru gefin út 157 ný emoji-tákn fyrir öll snjalltæki Apple. Rauðhærðir notendur Apple geta tekið gleði sína því að í nýju uppfærslunni má loksins finna emoji-tákn fyrir rauðhærða.
Rauðhærðir notendur Apple hafa lengi kvartað yfir því að eiga ekki sér fulltrúa í broskörlunum þar sem að flestir aðrir eiga fulltrúa.
Einn rauðhærður notandi Apple benti á að þó svo að aðeins 2 prósent af heiminum séu rauðhærðir þá jafngildir það um það bil 138 milljónir rauðhærða iPhone notenda sem hafa verið skildir eftir út undan.
Önnur tákn sem komu með nýju uppfærslunni voru meðal Llama dýr, beyglur, humar og klósettpappír. Nú er samtals hægt að velja úr 2823 táknum.
Skjáskot/Unicode
Hér að neðan má sjá myndband af öllum nýju brosköllunum sem komu með nýju uppfærslunni.