Auglýsing

Réðist ítrekað á konu sem höfuðkúpubrotnaði: Tekinn með dóp og vopn

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að ráðast á konu á heimili sínu eitt laugardagskvöld í janúar 2022. Í raun er um að ræða tvær árásir á sömu konuna.

Manninum er gefið að sök að hafa kastað óþekktum hlut í höfuð konunnar sem hlaut opið sár á höfði, höfuðkúpubrot og mar á heila fyrir vikið.

Vísir greinir frá.

Í ákæru segir að hún hafi fallið á gólfið við þetta, en þá hafi brotnað upp úr hægri augntönn hennar.

Með vopn og dóp

Þá er sami maður einnig ákærður fyrir að aðra árás í garð konunnar. Sú árás er sögð hafa átt sér stað skömmu eftir fyrri árásina. Í ákærunni segir að þau hafi verið á leið fótgangandi frá heimili mannsins þegar hann sparkaði í hægri fótlegg hennar. Fyrir vikið hafi hún hlotið roða og bólgu við hægri hnéskel.

Í ofanálag er maðurinn ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot fyrir að hafa haft í vörslu sinni 4,55 grömm af amfetamíni og tvær axir sem lögregla lagði hald á.

Konan krefst þriggja milljóna króna í miskabætur. Ekki kemur fram í ákærunni hvort eða hvernig maðurinn og konan tengist en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing