Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á Menningarnótt, þann 24. ágúst næstkomandi. Eins og áður gefst hlaupurum kostur á að hlaupa til styrktar góðu málefni og fer áheitasöfnunin fram á www.hlaupastyrkur.is.
Í tilkynningu frá Amesty International segir: „Við hvetjum ykkur sem ætlið að taka þátt til að hlaupa í nafni Amnesty og safna áheitum til styrktar mannréttindabaráttu um allan heim. Við viljum enn fremur hvetja ykkur sem ekki ætlið að hlaupa til að benda hressum hlaupurum í kringum ykkur á þennan möguleika.“