Auglýsing

Rich Piana dró pabba Söru með sér í ræktina og spillti honum svo með ís eftir æfinguna

Vaxtaræktarkonan Sara Piana, sem hét áður Sara Heimis, og kraftakarlinn Rich Piana, eiginmaður hennar, eru í sérstöku uppáhaldi á Nútímanum. Við höfum sagt áður að fréttir af venjulegu fólki að gera venjulega hluti heilla okkur ekki mikið.

Sjá einnig: Hótaði Rich Piana og Söru Heimis lífláti: „Ég tók byssuna með mér í ræktina“

Sara og Rich gengu í það heilaga á síðusta ári, eins og fjölmiðlar greindu frá, og héldu af því tilefni stórkostlega veislu. Rich á stóran aðdáendahóp og er með hundruð þúsunda fylgjenda á Instagram og Youtube, þar sem hann birtir reglulega myndbönd sem gefa fólki innsýn í líf þeirra hjóna.

Í nýjasta myndbandinu er Heimir, faðir Söru, kominn í heimsókn til Kaliforníu og fer hann að sjálfsögðu með þeim hjónum í ræktina. Myndbandið hér fyrir neðan sýnir hrikaleg átök og eftir æfinguna fengu þau sér svo að sjálfsögðu ís, eins og Rich og Sara gera á hverju á kvöldi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing