Auglýsing

Rich Piana og Sara Heimis skilja: „Við áttum klikkað og æðislegt ár saman“

Kraftakarlinn Rich Piana og vaxtaræktarkonan Sara Heimisdóttir eru ekki lengur saman. Þetta tilkynnti Rich Piana á Instagram-síðu sinni í dag. „Við áttum klikkað og æðislegt ár saman,“ segir hann.

Rich og Sara gengu í það heilaga í september á síðasta ári. Nútíminn fjallaði um brúðkaupið sem fór fram í Las Vegas og var mikið sjónarspil en þau fengu sér meðal annars húðflúr hvort öðru til heiðurs.

Nútíminn hefur svo reglulega fjallað um þau en Rich birti reglulega myndbönd á Youtube sem sýndi daglegt líf þeirra hjóna. Rich á stóran aðdáendahóp og er með hundruð þúsunda fylgjenda á Instagram og Youtube.

„Þetta var ævintýralegt líf en eins og öll pörum þá greinir okkur á. Það var því sameiginleg ákvörðun að þetta væri það besta í stöðunni,“ segir Rich í skilaboðum til aðdáenda sinna á Instagram.

Við erum ennþá vinir en við erum sammála um að þetta sé besti valkosturinn fyrir okkur. Mér fannst nauðsynlegt að tilkynna þetta á samfélagsmiðlum vegna þess að við vorum saman allan sólarhringinn og þegar það breytist spyrja allir: „Hvar er Sara?“

Rich segir 20 manns hafa spurt hann um Söru bara í dag. „Og þegar ég segi að við séum ekki lengur saman tekur við 20 mínútna samtal,“ segir hann.

„Sama hvað gerist í lífinu þá þarf maður að vera sterkur og halda áfram. Sara er mjög sterk stelpa og við munum halda áfram að vera eins góð og við getum í lífinu sjálfu.“

Rich og Sara bjuggu saman í glæsihúsi í Kaliforníu en hann gaf aðdáendum sínum skoðunarferð í nýjasta myndbandinu sínu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing