Ríkharð Óskar Guðnason, dagskrárstjóri FM957, skellti sér til útlanda á dögunum og líkt og allir Íslendingar var hann duglegur að birta myndir frá ferðinni á Instagram.
Sjá einnig: Twitter samfélagið fer yfir þá samfélagsmiðlafrasa sem þurfa að deyja: „Skrifstofa dagsins“
Instagram er afar vinsæll staður til þess að deila myndum úr ferðalögum og einhverra hluta vegna hefur skapast sú hefð að skrifa alltaf afar ófrumlega frasa við myndirnar. Rikki tók í ferð sinni saman þá allra þreyttustu.
Sjá einnig: Sjö ofnotaðir frasar á samfélagsmiðlum: „Nú ætla ég að láta reyna á mátt Facebook“
Ekki hafa áhyggjur af mér
Skrifstofa dagsins
Slagga og njódda
Hef haft það verra
Oft haft það verra
Bið að heilsa úr sólinni til Íslands hehe
Léttvín kostar ekkert á Spáni
Við að njóta á Tenerife
Hér er allt upp á 10,5