Auglýsing

Rich Piana greinist með húðkrabbamein

Vöðvatröllið Rich Piana, fyrrverandi tengdasonur Íslands, greindist á dögunum með húðkrabbamein. Rich hafði látið fjarlægja sjö varhugaverða fæðingarbletti en fékk í kjölfarið tilkynningu um að grunnfrumukrabbamein hafi greinst í einum fæðingarbletti.

Leiðir Rich Piana og Söru Heimisdóttur skildu á dögunum en tvennum sögum fer af því hvernig aðskilnaðurinn fór fram. Þau giftu sig í fyrra og hann segist hafa fengið hjónabandið ógilt en hún segir að það sé ekki rétt og talar um hefðbundinn skilnað.

Chanel Renee, ný kærasta, Rich segir frá húðkrabbameininu í nýjasta myndbandinu á Youtube-síðu hans. Þar segir hún læknana telja að það geti ógnað lífi hans ef ekkert verður að gert. Um 850 þúsund manns fylgjast þar með hverri hreyfingu Rich en hann er duglegur að birta myndbönd frá lífi sínu í dag eins og þegar hann var kvæntur Söru.

Í myndbandinu, sem má sjá hér fyrir neðan, segir Rich að læknarnir hafi hreinlega ekki skorið nógu djúpt þegar þeir fæðingarblettirnir sjö voru fjarlægðir. „Þeir verða bara að fara dýpra,“ segir hann og grínast með að hann gæti sjálfur skorið nógu djúpt.

Rich Piana hefur skotið reglulega upp kollinum í íslenskum fjölmiðlum síðan hann kvæntist Söru Heimisdóttur í fyrra. Eftir að leiðir þeirra skildu sakaði hann Söru um að giftast sér til að fá græna kortið í Bandaríkjunum. Þá sakaði hann hana um að stela af sér peningum.

Sara svaraði Rich fullum hálsi í viðtali í útvarpsþættinum Brennslunni á FM957 á dögunum. Hún segist ekki hafa gifst Rich til að fá græna kortið og vísar því á bug að hafa stolið af honum peningum.

Sara vísaði ummælum Rich til föðurhúsanna. „Þetta er bara eins og maður segir bunch of bullshit,“ sagði hún og bætti við að hann sé ekki allur sem hann er séður.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing