Systkinin Aron Már Ólason og Birta Ólafsdóttir héldu sameiginlega útskriftarveislu á laugardaginn. Aron Már var að útskrifast af leikarabraut Listaháskóla Íslands og Birta fagnaði útskrift frá Coventry University.
Veislan var hin glæsilegasta og margar af helstu stjörnum landsins létu sjá sig. Búningaþema var í veislunni og fólk klæddi sig því ansi skemmtilega upp.
Aron og Birta klæddu sig upp sem systkinin Donatella og Gianni Versace. Hildur Skúladóttir, kærasta Arons klæddi sig þá upp sem Grimmhildur Grámann og sonur þeirra Birnir Blær var dalmatíu hundur.
Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir úr teitinu