Rúrik Gíslason er kominn með milljón fylgjendur á Instagram. Sigurför hans á Instagram virðist engan endi ætla að taka en eins og frægt er orðið sló hann í gegn í leiknum gegn Argentínu og síðan þá hefur flygjendahópur hans hundraðþúsund faldast.
Þegar Rúrik kom inná völlin í leik Íslands og Argentínu fyrir rúmri viku, laugardaginn 16. júní síðastliðinn, var hann með 30 þúsund fylgjendur á Instagram. Hann náði milljóninni í gærkvöldi og þar með fjölgaði fylgjendum hans um 970 þúsund á einni viku.
Sjá einnig: Bjóða upp á að veðja á hversu marga fylgjendur Rúrik fær á Instagram
BBC Sport fjallar um frægðarför Rúriks og lýsir honum sem blöndu af Chris Hemsworth og Brad Pitt með keim af Channig Tatum. Ekki amalegur félagsskapur þar á ferð.
What do you get when you mix Chris Hemsworth and Brad Pitt, with a hint of Channing Tatum?
Meet Iceland's Rurik Gislason – social media's new favourite heart-throb ?
? https://t.co/oo9Zor9Pjd#bbcworldcup #WorldCup pic.twitter.com/MM8v1tRRbe
— BBC Sport (@BBCSport) June 22, 2018
Í greininni er einnig bent á að hann sé nú kominn með fleiri fylgjendur en íbúafjöldi Ísland og allir samfélagsmiðlar Knattspyrnusambandsins samanlagt.
Myllumerkið sexyrurik er einnig orðið vinsælt á Twitter en landsliðsmaðurinn Kári Árnason fær heiðurinn af því
Lets do this #sexyrurik pic.twitter.com/n7EcLzsRRO
— Kari Arnason (@karibestmeister) June 9, 2018
https://twitter.com/Bryony_Spencer/status/1010197883461799936
“@GislasonRurik , who is a part-time model, well I guess everyone can see that” – British commentator in BBC. Hahahaha oh yes I can see it ??? #sexyrurik
— Ria de Leon (@riaaaaaaaa88) June 22, 2018
Rúrik hefur verið sérstaklega vinsæll hjá Suður-Amerískum konum sem margar hverjar játa ást sína á honum í athugasemdum við myndirnar hans. Eftir að brasilíska leikkonan Gabriella Lopes spurði fylgjendur sína „Hvernig er mögulegt að vera svona sætur?“ og argentíska leikkonan Gimena Accardi fylgdi honum á Instagram varð síðan allt vitlaust. Síðan þá hefur Rúrik verið hlutgerðum af konunum og hataður af körlunum.
Sjá einnig: Rúrik hlutgerður af argentískum konum og hataður af argentískum körlum: „Ég skal hugga þig“
Rúrik er nú komin í hóp vinsælustu Íslendinganna á Instagram og er á pari við Björk Guðmundsdóttur söngkonu en með aðeins færri fylgjendur en Hafþór Júlíus Björnsson og Crossfit-konurnar Ragnheiður Sara og Katrín Tanja sem eru öll þrjú með rúmlega eina milljón fylgjenda.