Stjörnuparið Rúrik Gíslason og Nathalia Soliani heimsóttu Las Vegas um helgina en þau voru dugleg að sýna frá ferðinni á samfélagsmiðlum.
Rúrik sem vakti heimsathygli þegar hann lék með íslenska landsliðinu á Heimsmeistaramótinu á Rússlandi á síðasta ári greindi frá sambandi sínu við brasilísku fyrirsætuna seint á síðasta ári.
Þau eru dugleg á samfélagsmiðlum en Rúrik er einn vinsælisti Íslendingurinn á Instagram. Myndirnar þeirra frá Las Vegas hafa vakið athygli en þau skelltu sér meðal annars á tónleika kanadísku söngkonunnar Celine Dion.
Rúrik birti í morgun mynd frá þjóðvegi 66 þannig að parið mun líklega halda áfram að ferðast um Bandaríkin næstu daga.