Sænska söngkonan Loreen er stödd á Íslandi og hefur verið dugleg við að birta myndir á Instagram. Hún kom til landsins í vikunni og virðist ætla að njóta náttúrufegurðarinnar á meðan hún dvelur hér á landi.
Loreen þekkjum við að sjálfsögðu úr Eurovision en hún rústaði keppninni í Aserbædsjan árið 2012 með laginu Euphoria. Lagið sló víðar í gegn og náði til dæmis þriðja sæti á breska vinsældarslistanum. Ekkert Eurovision lag utan Bretlands hefur náð þeim árangri.