Auglýsing

Sænski sjarmörinn trúlofaði sig í Bláa lóninu: „Besta ferðalag allra tíma“

Söngvarinn Robin Bengtsson, sem flytur framlag Svíþjóðar í Eurovision í Úkraínu í næstu viku, bað um hönd Jennie Salte, kærustunnar sinnar, á Íslandi í mars. Robin var staddur hér á landi í fríi en hann og Jennie trúlofuðu sig í Bláa lóninu.

Hún birti í kjölfarið þessa mynd á Instagram: „Hann bað mín í Bláa lóninu og ég sagði já! Besta ferðalag allra tíma!“ sagði hún

Robin er 26 ára gamall og flytur lagið I Can’t Go On í Eurovision. Hann birti meðal annars þessa mynd af ferðalagi sínu til Íslands í mars

https://www.instagram.com/p/BSHGhWeAfRR/?taken-by=robinbengtssons

Í færslu með annarri mynd á Instagram sagði hann að Ísland væri hreint út sagt ótrúlegt.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing