Rúmar tvær vikur eru liðnar frá lokum síðasta eldgoss á Sundhnúksgígaröðinni. Gögn frá GPS-mælum sýna að landris í Svartsengi heldur áfram á jöfnum hraða. Líkanreikningar byggðir á þeim gögnum áætla að kvikusöfnun undir Svartsengi haldi sömuleiðis áfram á svipuðum hraða. Mælingar á landrisi og áætlun á hraða kvikusöfnunar svipar til þess sem sást á milli síðustu kvikuhlaupa og eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni.
Á meðan kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og magn kviku nær að verða sambærilegt og í aðdraganda síðustu atburða má búast við nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Of snemmt er hins vegar að fullyrða um hvenær von er á næsta kvikuhlaupi eða eldgosi. Ef horft er til síðustu tveggja atburða er ólíklegt að það dragi til tíðinda á næstu vikum.
Uppfært hættumat
Hættumat Veðurstofunnar hefur verið uppfært og gildir að öllu óbreyttu til 3. október næstkomandi.
Töluverðar breytingar hafa verið gerðar, þær helstu snúa að mati á hættu vegna sprunguhreyfinga og vegna jarðfalls ofan í sprungur en þessar tvær hættur hafa verið lækkaðar fyrir nánast öll svæði.
Hraunbreiðan er enn mjög heit og hætta af völdum hennar því talin mikil á þeim svæðum þar sem hraun rann í síðasta gosi og gasmengun töluverð frá hraunbreiðunni. Hætta af völdum gjósku er nú alls staðar á lægsta stigi.
Í nýju hættumati er heildarhættan fyrir svæði 4 – Grindavík – metin „nokkur“ (gult stig), en hætta vegna jarðfalls ofan í sprungu er þó metin hærri, eða „töluverð“.
Veðurstofan vill taka það fram að enn er unnið að því að girða af og merkja hættuleg svæði innan Grindavíkur á vegum Grindavíkurnefndar.
Hættumatið tekur ekki tillit til slíkra mótvægisaðgerða sem þykja nauðsynlegar til að koma í veg fyrir möguleg slys eða tjón af völdum þeirrar hættu sem er til staðar hverju sinni.
Fyrir utan þá hættu sem Veðurstofan metur eru fleiri þættir sem hafa áhrif á hversu mikil áhætta fylgir því að dvelja innan bæjarins hverju sinni, s.s. takmarkaðar flóttaleiðir, sprunguviðgerðir, hús sem geta hrunið, hætta af löskuðum rafstrengjum o.s.fr.v.