Tónlistarfólkið Salka Sól Eyfeld og Arnar Freyr Frostason eiga von á barni saman. Salka Sól greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í dag.
Sjá einnig: Arnar Freyr og Salka Sól trúlofuðu sig á Spáni: „Ég sagði hell yeah bro!“
„Loksins er einn lítill lurkur á leiðinni hjá okkur, það sem þetta barn er velkomið í heiminn. Getum ekki beðið eftir því að verða fjölskylda,“ skrifar Salka á Twitter og Instagram.
Það er nóg af gleðitíðindum í kringum parið en þau trúlofuðu sig á Spáni árið 2017 og munu gifta sig í sumar.
Loksins er einn lítill lurkur á leiðinni hjá okkur ❣ það sem þetta barn er velkomið í heiminn. Getum ekki beðið eftir því að verða fjölskylda @arnarfreir pic.twitter.com/bWkzl0nDyp
— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) July 2, 2019