Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna.
Konan var með lítið barn meðferðis og óttast var að hún myndi vinna því og sjálfri sér skaða, en konan var með hníf í hendinni.
„Fjöldi viðbragðsaðila var kallaður á vettvang, m.a. samningamenn frá embætti ríkislögreglustjóra, en eftir töluverðar samningaviðræður tókst loks að yfirbuga konuna, en hvorki hana né barnið sakaði í aðgerðum lögreglunnar. Í framhaldinu var konunni komið undir læknishendur og barninu í umsjá barnaverndaryfirvalda,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Lokað var fyrir umferð um Sólheima á meðan aðgerðum lögreglunnar stóð, en lokunum var aflétt um eittleytið.