Í kvöld klukkan 20:30 mun leikhópur Borgarleikhússins leiklesa hluta úr samtali þingmanna á veitingastaðnum Klaustri.
Í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu segir að eitt af meginhlutverkum þess sé að varpa ljósi á málefni líðandi stundar. Með viðburðinum leitist leikhúsið við að skoða ábyrgð og orðræðu kjörinna fulltrúa í lýðræðislegu samhengi.
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir leiklestrinum og leikarar eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Hilmar Guðjónsson.
Viðburðurinn, sem verður á Litla sviði leikhússins, er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Ef salurinn fyllist verður leiklestrinu einnig streymt í forsal leikhússins. Auk þess verður hægt að fylgjast með því streymi á netinu og verða upplýsingar um það birtar síðar. Húsið mun opna kl. 20:00 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega.