Fréttir um vöðvatröllið Rich Piana og vaxtaræktarkonuna Söru Heimsdóttur hafa vakið mikla athygli undanfarið. Rich og Sara gengu í það heilaga á dögunum og brúðkaupið var svakalegt, eins og kom fram á Nútímanum.
Sara og Rich eru í viðtali í Sunnudagsmogganum, sem kom út í dag. Þar kemur meðal annars fram að þau horfi til undirfataiðnaðarins í leit að næstu verkefnum. Hann á fyrirtækið 5% sem framleiðir fæðubótarefni og líkamsræktarfatnað.
„Það kannast flestir hundaeigendur við tilfinninguna að langa til að eignast annan hund þegar sá fyrsti fer að verða stór,“ segir Rich í Morgunblaðinu.
Það er svo ofboðslega gaman að fylgjast með hvolpinum vaxa og dafna. Þannig er þetta með 5%. Nú þegar þetta fyrirtæki er farið að ganga vel er mig farið að langa til að koma nýju verkefni af stað.
Hann segist sjá tækifæri í öllum hornum.
„Ég get nefnt sem dæmi að við vorum í verslunarmiðstöð um daginn, fórum inn í Victoria’s Secret í leit að undirfötum handa Söru og áttum í mestu vandræðum með að finna brjóstahaldara sem pössuðu henni. Svo að ég fór að hugsa: Auðvitað ættum við að opna undirfataverslun með sérsaumuðum brjóstahöldurum.
Ég veit að Sara er ekki eina konan sem er í vandræðum með að finna brjóstahaldara sem passar henni fullkomlega. Ég sæi vel fyrir mér að það væri hægt að koma í undirfataverslun, fá fullkomna mælingu og svo sérsaumaðan brjóstahaldara.“
Sjá einnig: Stórkostlegustu augnablikin úr brúðkaupi Rich Piana og Söru Heimis
Sara segir í viðtalinu að það sé hreinasta martröð að finna réttu skálastærðina, það sé ómögulegt að fá brjóstahaldara sem passi konum sem þurfa stærri skálar en eru einnig með grönn mitti.