Þau Sara Linneth Castañeda og Árni Páll Árnasson, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, eiga von á barni. Parið greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.
Sara birtir mynd af sónarmynd og skrifar við að barnið sé væntanlegt í heiminn í febrúar á næsta ári. Árni Páll birtir krúttlega mynd af þeim saman og skrifar við: „Það er lítil górilla á leiðinni.“
Parið hefur verið saman í um tvö og hálft ár.