Íslenska fyrirsætan Kristín Lilja Sigurðardóttir sat fyrir með ofurstjörnunni Kendall Jenner í myndatöku fyrir nýja línu frá Adidas Originals. Þetta kemur fram á mbl.is.
Kristín segir í samtali við mbl.is að það hafi verið fyndið að sjá Kendall í persónu því að hún sé alveg eins og á öllum myndunum af henni. „Eiginlega eins og barbídúkka,“ segir Kristín.
Kristín var ein af níu konum sem sátu fyrir með Jenner sem er andlit nýrrar línu sem Adidas Originals gerir í samstarfi við fatahönnuðinn Oliviu Blanc.
„Þetta var mjög skrítið. Það er alltaf merkilegt þegar maður sér einhvern svona þekktan. Það var sjúklega mikið af öryggisvörðum í kringum hana og í rauninni bara heilt teymi. Við sögðum bara hæ,“ segir Kristín á mbl.is.
Hún segir að Jenner hafi ekki tekið þátt í venjulegum undirbúningi með hinum fyrirsætunum. Hér að neðan má sjá myndir úr myndatökunni.