Heimildarmyndin Going Clear: Scientology and the Prison of Belief var sýnd á sjónvarpsstöðinn HBO 29. mars. Ótrúlegir hlutir um Vísindakirkjuna eru afhjúpaðir í myndinni en Nútíminn fjallaði aðeins um það á dögunum.
Sjá einnig: Sex klikkaðar afhjúpanir í nýrri heimildarmynd um Vísindakirkjuna
Grínþátturinn Saturday Night Live gerði um helgina grín að tónlistarmyndbandi sem Vísindakirkjan gaf út á níunda áratugnum. Fjallað er lítillega um myndbandið í heimildarmyndinni en grínið ristir aðeins dýpra og sýnir örlög fólk sem var í Vísindakirkjunni.
Þetta er ekkert brjálæðislega fyndið — frekar brjálæðislega satt. Horfið á myndbandið hér fyrir neðan.