Auglýsing

Segir meðlimi Zúista fá endurgreitt og býður þeim að láta sóknargjöldin renna til góðargerðarmála

Meðlimum í trúfélagi Zúista býðst á næstunni að sækja um endurgreiðslu á sóknargjöldum sem félagið hefur fengið greidd frá ríkinu. Þá hyggst trúfélagið bjóða fólki að styrkja góðgerðarmál með sóknargjöldum sínum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ágústi Arnari Ágústsssyni, forstöðumanni trúfélagsins Zuism.

Sjá einnig: Zúistar fengu 53 milljónir úr ríkissjóði

Trúfélagið Zuism fékk rúmlega 53 milljónir króna úr ríkissjóði þann 9. október síðastliðinn. Þá féllst sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra á kröfu Ágústs Arnars Ágústssonar um að skrá hann sem forstöðumann trúfélagsins. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag

Fyrrverandi og núverandi forsvarsmenn trúfélags Zúista á Íslandi hafa deilt um hver eigi rétt á sóknargjöldum félagsins. Fyrrverandi forsvarsmenn höfðu lofað að endurgreiða meðlimum trúfélagsins sóknargjöldin.

Ágúst rekur málið frá sinni hlið í yfirlýsingunni sem má sjá í heild hér fyrir neðan. Hann segir að félagið vinni nú að heimasíðunni zuism.is þar sem að hægt verður að sækja um endurgreiðslu á sóknargjöldum eftir umsýslugjöld. „Félagið vinnur nú þegar með endurskoðendum og ráðgjöfum um hvernig þessu sé best háttað,“ segir hann.

„Einnig verður val um að sóknargjöld viðkomandi sóknabarns renni til góðgerðamála. Félagið hefur t.d. nú þegar sett sig í samband við Barnaspítala Hringsins og hefur fengið lista af tækjum sem vantar á spítalann og hyggst félagið styrkja það málefni ef safnast nægt fé.“

Hann segir að með hjálp sóknarbarna geti félagið orðið langtímastyrktaraðili að slíkum stofnunum.

Yfirlýsingin frá Ágústi í heild:

Félagið var viðurkennt sem trúfélag í byrjun 2013 eftir árslangt skráningarferli. Stjórn félagsins hefur verið óbreytt að meirihluta frá stofnun félagsins. Ágúst Arnar Ágústsson tók við sem forstöðumaður í september 2014.

Stjórn félagsins fékk veður af því um mánaðamótin nóvember/desember 2015 að einstaklingar ótengdir félaginu væru að koma fram fyrir hönd þess og kynntu sig sem stjórn félagsins og forstöðumann.

Tafarlaust var að haft samband við þessa einstaklinga og einnig starfsmann sýslumann til að leita eftir svörum hvernig á þessu stæði. Báðir aðilar fóru undan í flæmingi og var ákveðið að fá lögmann í málið. Eftir að enginn svör fengust í lengri tíma frá starfsmanni sýslumanns þá var ákveðið að fara með málið til innanríkisráðuneytisins. Einnig var lögð fram kæra til lögreglunnar þegar kom í ljós að þessir aðilar höfðu reynt að blekkja fjársýslu ríkisins til að leggja sóknargjöld félagsins inn á reikning sem var ekki tengdur trúfélaginu.

Félagið hefur alltaf verið skráð trúfélag og starfandi og hefur aldrei fengið neinar athugasemdir við starfsemi sína frá viðeigandi stofnun. Við rannsókn innanríkisráðuneytisins kemur í ljós að starfsmaður sýslumanns hefur átt í óviðeigandi samskiptum við umræddan hóp utan vinnutíma. Eftir að þetta komst upp hefur hann verið staðinn að því að senda villandi upplýsingar til innanríkisráðuneytisins og að eyða málsgögnum, sem meðal annars tengjast samskiptum milli hans og umrædds hóps.

Niðurstaða innanríkisráðuneytisins leiddi í ljós að umræddur hópur hafði aldrei nokkurn tímann stjórnað félaginu á nokkurn hátt og kemur fram að vinnuferli starfsmanns sýslumann var ekki samkvæmt lögum. Þrátt fyrir þetta var starfsmaður sýslumanns ennþá með málefni félagsins á sínu borði og hefur vísvitandi ekki unnið úr tilkynningu félagsins um skráðan forstöðumann enda miklir hagsmunir fyrir hann á þessu stigi.

Félagið ákvað að stefna ríkinu vegna vangoldinna sóknargjalda og féll dómur með ríkinu vegna villandi upplýsinga frá starfsmanni sýslumanns. Eftir að starfsmaður sýslumanns hafði hunsað fyrirmæli innanríkisráðuneytisins, um að afgreiða mál félagins, var málinu snúið til Umboðsmanns Alþingis sem tók málið snögglega til afgreiðslu.

Eftir 6-7 ósvöruðum ítrekunum frá umboðsmanni við erindi sínu til sýslumanns var málið loks afgreitt af starfsmanni sýslumanns eftir næstum 2 ára bið. Eftir afgreiðslu á tilkynningunni var lokið staðfestist að Ágúst Arnar hefur verið forstöðumaður félagsins yfir allt þetta tímabil.

Eftir að erindið var afgreitt hjá sýslumanni var óskað eftir því við fjársýslu ríkisins að hún hefði aftur greiðslur sóknargjalda til félagsins sem höfðu verið
frystar eftir að umræddur hópur hafði reynt að fá þær til sín án leyfis. Eftir að fjársýsla hóf aftur greiðslur til trúfélagsins hófst strax áætlanagerð um ráðstöfun þeirra.

Félagið vinnur núna að heimasíðunni zuism.is þar sem að hægt verður að sækja um endurgreiðslu á sóknargjöldum eftir umsýslugjöld. Félagið vinnur nú þegar með endurskoðendum og ráðgjöfum um hvernig þessu sé best háttað.

Einnig verður val um að sóknargjöld viðkomandi sóknabarns renni til góðgerðamála. Félagið hefur t.d. nú þegar sett sig í samband við Barnaspítala Hringsins og hefur fengið lista af tækjum sem vantar á spítalann og hyggst félagið styrkja það málefni ef safnast nægt fé. Með hjálp sóknarbarna getur félagið orðið langtíma styrktaraðili að slíkum stofnunum. Félagið hefur aðeins meðlimatal eins og það stendur í dag og getur ekki óskað
eftir upplýsingum um meðlimi sem hafa sagt sig úr félaginu. Félagið hyggst einnig efla starfsemi trúfélagsins svo áframhaldandi stuðningur við góð málefni og endurgreiðslur geti haldið áfram.

Félagið harmar það að villandi upplýsingar hafi verið á sveimi varðandi stjórn félagsins og forstöðumann og ljóst er að umræddur hópur hefur ítrekað dreift villandi og níðandi upplýsingum um réttmæta stjórnendur félagsins til að vernda sjálfan sig og eigin hagsmuni. Félagið mun núna í framhaldinu vinna að því að bæta ímynd sína og stuðla að uppbyggingu í samfélaginu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing