Nova í Kringlunni hefur hafið sölu á iPhone 6 í takmörkuðu upplagi. Síminn er fenginn í gegnum þriðja aðila, ekki beint frá Apple, og kostar því 159.900 krónur. Líklegt þykir að sama týpa kosti um 120 þúsund krónur þegar hún kemur formlega til landsins.
Í tilkynningu frá Nova kemur fram að óvíst sé hvenær sala á símanum hefst formlega hér á landi:
Stundin sem svo margir hafa beðið eftir er runnin upp því iPhone 6 er kominn til Íslands. Fyrst um sinn verður hann seldur í takmörkuðu magni fyrir þá sem bara geta ekki beðið eftir þessari snilld.
Sala á símanum hófst í fyrstu löndunum í gær og einn viðskiptavinur er strax búinn að missa hann í jörðina.